Rokkkórinn – Lindarkirkju

Miðaverð 5.000 kr.

240 á lager

Rokkkórinn – Lindarkirkju

Þá er komið að því.

Rokkkórinn ætlar að halda þrenna tónleika í mars næstkomandi. Mun fjörið hefjast í Lindarkirkju Kópavogi 22. mars, fimmtudaginn 27. mars verður haldið norður í Skagafjörð, nánar tiltekið í félagsheimilinu Miðgarði og að lokum heima í héraði í Félagsheimilinu Hvammstanga laugardagskvöldið 29. mars.

Dagskráin mun spanna lög yfir 50 ára tímabil og því um fjölbreytta dagskrá að ræða.

Rokkkórinn er 25 manna kór úr Húnaþingi vestra sem hefur verið starfandi síðan 2021. Er þetta í annað skiptið sem kórinn stendur sjálfur fyrir tónleikum en hefur einnig komið fram sem gestaatriði í nokkur skipti.  Meðlimir kórsins koma úr öllum áttum, bændur, kennarar, rafvirkjar, smiðir, dýralæknir, innheimtustjóri, fjármálastjóri, prjónakall, sjúkraliði, leikskólakennari, innkaupastjóri, sjúkraflutningamenn og áfram mætti telja.  Æfingar fyrir þessa tónleika hafa staðið yfir með hléum síðan haustið 2023 og er mikil tilhlökkun í kórnum með að sýna afrakstur þeirra.

Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 en húsið opnar 19:30.

Miðaverð

5000 kr

Staðsetning

Lindarkirkja í Kópavogi

Dagsetning

22. mars 2025 kl. 20:00

Flokkar

240 á lager