Minningartónleikar

Miðaverð 4.000 kr.

Ekki til á lager

Minningartónleikar

Skúli Einarsson, bóndi og tónlistarmaður, féll frá í nóvember 2021 eftir langa og stranga baráttu við krabbamein. Til að heiðra minningu hans verða haldnir minningartónleikar þann 21. október 2023 í Félagsheimilinu á Hvammstanga sem hefjast kl. 20:00.

Skúli steig sín fyrstu skref í tónlist 1970 og hafði á sinni ævi mikil áhrif á lista og menningarlífið í Húnaþingi. Hann stundaði nám í tónlistarskólanum í söng og gítarleik og lék á trommur með fjölmörgum hljómsveitum. Skúli var mikill tónlistarmaður og frumkvöðull, stóð fyrir fjölmörgum tónlistarviðburðum í héraðinu. Hann var mjög virkur í félagsstörfum og í tónlistarlífi alla tíð.

Á tónleikunum verður flutt tónlist sem honum var hugleikin og ber vott um hans tónlistarferil. Fram koma söngvarar úr héraði og aðilar sem tengdust Skúla á vegferð hans. Undirleik annast hljómsveitin Krummafótur ásamt öðru tónlistarfólki. Við viljum nota þetta tækifæri og minnast Skúla og varpa ljósi á hve mikils virði hann var fyrir tónlistarstarf í héraðinu. Og kveðja hann á þennan hátt með miklu þakklæti fyrir allt sem hann gaf okkur.

Miðaverð er 4.000 kr.

Allur ágóði af miðasölu rennur óskiptur í Velferðarsjóð Húnaþings vestra en það er sjóður sem Ólöf, eftirlifandi kona Skúla hefur styrkt. Njótum saman góðrar tónlistar og minnumst góðs vinar, bónda og tónlistarmanns.

Ekki til á lager